Fátt bendir til annars en Emmanuel Macron beri sigurorð af Mariane Le Pen í síðari umferð frönsku forsetakosninganna sem fram fara 7. maí næstkomandi. Gleðjast flestir sæmilega skynsamir menn yfir því. Macron stofnaði sinn eigin flokk í fyrra, En Marche! sem kalla má popúlískan með rætur í frjálslyndu miðju franskra stjórnmála. Nú keppast stjórnmálamenn hér landi við líkja sér við nýju stjórnmálastjörnuna. Segir Gunnar Smári Egilsson sósíalistaleiðtogi að það þurfi bara 16 nýja félagsmenn í Sósíalistaflokkinn sinn til að hlutfallslega jafn margir gangi í flokkinn og í flokk Macron í fyrra, og þykist býsna hróðugur. Pawel Bartozek þingmaður Viðreisnar er síðan þess fullviss að Macron sé Viðreisnarmaður. Það virðist því eins á komið með Macron og með Eysteini munki, að nú vildu allir Lilju kveðið hafa.