Áfengisfrumvarp þingmanna nokkurra flokka mælist illa fyrir meðal þjóðarinnar og skoðanakannanir sýna að mikill meirihluti þjóðarinnar er andvígur því að áfengi verði selt í verslunum. Meirihlutinn er svo yfirgnæfandi að líklegt er að einhverjir þingmenn, sem ekki hafa haft sérlega sterkar skoðanir á málinu, muni ekki vilja ganga í berhögg við vilja þjóðarinnar og leggist því gegn frumvarpinu. Skoðanakannanir geta sannarlega haft áhrif og gætu jafnvel valdið úrslitum í umdeildu máli.