Annar vaskur pistlahöfundur, Björn Bjarnason, gerir viðbrögð Framsóknar við afnámi gjaldeyrishafta að umtalsefni í pistli og segir: „Sigmundur Davíð Gunnlaugsson reynir nú að ná vopnum sínum og segir að hann hefði ekki samið við vogunarsjóði á þann hátt sem gert var í tengslum við afnám haftanna. Gefur hann sér einhverjar tölur í því sambandi en aðrir nefna aðrar tölur. Tæki hann af sér flokkspólitísku gleraugun áttaði hann sig á að hann sér ofsjónum yfir ábata vogunarsjóðanna.“