Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, er ekki sáttur við Helga í Góu. Í viðtali við helgarblað DV, ræddi Helgi um eitt helsta baráttumál sitt, það að lífeyrissjóðir fjárfesti í húsnæði sem hentar öldruðum. Helgi gagnrýndi jafnframt unga Sjálfstæðismenn fyrir að vilja koma áfengi í matvöruverslanir og vildi sjá þá jafn ákafa í að gömlu fólki liði vel í ellinni. Björn kvartar undan því að Helgi hnýti einungis í unga Sjálfstæðismenn þegar þingmenn úr Viðreisn, Pírötum og Bjartri framtíð séu meðal flutningsmanna áfengisfrumvarpsins. Um áherslu Helga á að lífeyrissjóðir fjárfesti í húsnæði fyrir aldraða segir Björn: „Helgi hefur helgað sig þessu baráttumáli sínu árum saman án þess að hafa árangur sem erfiði. Hann er því í svipuðum sporum og þeir sem lengst hafa barist fyrir að áfengi verði selt utan vínbúða ríkisins.“