fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Vill fella niður gjald formannsins

Ritstjórn DV
Laugardaginn 7. október 2017 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lýst því yfir að hún vilji fella niður stimpilgjöld á íbúðarkaupum. Segir hún gjöldin ósanngjarnan skatt og vera dæmi um lög sem sett séu af stjórnmálamönnum sem gæti hagsmuna ríkisins en ekki almennings. Gjaldið sem varaformaðurinn vill fella niður er hluti af lögum sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram árið 2013 í tíð sinni sem fjármálaráðherra. Voru þá stimpilgjöldin hækkuð hjá einstaklingum úr 0,4% í 0,8% á meðan önnur gjöld voru felld niður. Spyrja má hvort varaformaðurinn sé að segja að hennar eigin formaður og þingmenn hafi verið að gæta hagsmuna ríkisins en ekki almennings.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Í gær

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala