Samtök fjármálafyrirtækja stóðu fyrir vel sóttum fundi í vikunni í tilefni þess að þau hafa gefið út skýrslu um þær miklu breytingar sem hafa verið gerðar á regluverki fjármálamarkaða frá því að alþjóðlega fjármálakreppan skall á árið 2008.
Á meðal þess sem kom til tals í pallborðsumræðum á fundinum var sú hugmynd, sem ýmsir hafa mælt fyrir á síðustu árum, að komið verði á fót samfélagsbanka í eigu ríkisins. Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildar HÍ og einn höfunda skýrslunnar, gaf lítið fyrir slíkar tillögur og sagði að það væri „eiginlega geðveiki“ að vilja slíkan samfélagsbanka. Undir þá skoðun hagfræðingsins má taka.