Siðareglur RÚV hafa verið birtar á heimasíðu félagsins. Þær eru áhugaverðar og líta vel út. Þar segir meðal annars: „Starfsfólk gætir að því að vera óháð stjórnmálalegum, hugmyndafræðilegum og efnahagslegum hagsmunum í efnismeðferð og ritstjórnarákvörðunum.“
Varðandi framkomu segir: „Starfsfólk rýrir ekki trúverðugleika Ríkisútvarpsins með ámælisverðri framkomu.“
Svo er skrítið ákvæði um að starfsfólk eigi að klaga hvert annað ef það verði vart við brot á þessum reglum og svo er einnig stranglega bannað að leggja fólk í einelti innan veggja stofnunarinnar.