Fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri, hefði fengið starfslokasamning upp á rúmar 22 milljónir króna þegar hann lét af störfum hjá RÚV. Þetta vissu allir enda upplýsti DV um þetta í janúar í fyrra. Hitt sem enginn veit og RÚV heldur leyndarhulu yfir, er hvaða aðrir framkvæmdastjórar fengu milljóna starfslokasamninga. Þar ríkir leyndarhjúpur aflandseyjanna áfram.