Völva DV spáði um síðustu áramót að brotið yrði blað í forsetakosningum á árinu. Hún sagði: „Margir bjóða sig fram og dramatíkin verður mikil. Eftir alls konar beygjur og mikið langlundargeð margra mun Ólafur Ragnar áfram sitja á Bessastöðum.“ Síðar sagði hún: „Ólafur mun gefa í skyn að hann ætli ekki fram. En spyrjum að leikslokum.“ Svo mörg voru þau orð. Sumir brostu út í annað að þessu. En nú er komin upp staða sem fær Sandkornsritara til að hugsa til þessara orða.