fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

„Hvílík sjálfsánægja!“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 1. apríl 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hringbraut sagði frá því á dögunum að Njörður P. Njarðvík sé alveg hlessa á því hvaða núll og nóboddí séu á leið í forsetaframboð og finnst þau nú ekki standast samanburð við forseta fortíðarinnar og klykkir svo út með orðunum: „Hvaðan kemur eiginlega þetta sjálfsálit? Hvar er dómgreind og sjálfsgagnrýni? Hvílík sjálfsánægja!“.

Þetta er merkilegt fyrir þær sakir að árið 1996 taldi Njörður rétt að gefa sig fram við þjóð sína til þjónustu á Bessastöðum. Hann tók sér þó ógnarlangan tíma til umhugsunar og féll loks frá þessu, þar sem honum óx tilkostnaðurinn í augum. En jú, það eru nú ekki mörg mikilmenni af hans kalíberi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga