Tillögur tryggingafélaganna, einkum VÍS, um milljarða arðgreiðslur hafa orðið tilefni mikillar gagnrýni, meðal annars frá forystumönnum stjórnvalda. Þrátt fyrir það hafa forsvarsmenn þeirra kosið að tjá sig ekkert við fjölmiðla. Herdís Dröfn Fjeldsted, stjórnarformaður VÍS, hefur þannig ekki séð ástæðu til að svara margítrekuðum beiðnum um viðtal.
Það vakti því furðu að lesa tilkynningu VÍS til Kauphallarinnar í gær, vegna ákvörðunar stjórnar um að leggja fram tillögu um mun lægri arðgreiðslu, en þar segist stjórnin telja „mikilvægt“ að fram fari umræða innan félagsins og „úti í samfélaginu um langtímastefnu“ vegna útgreiðslu arðs í félögum á markaði. Undir þetta má taka en stjórn VÍS ætti þá að fara fram með góðu fordæmi og ræða þessi mál við fjölmiðla.