Þrátt fyrir að ráðning Halldórs Benjamíns Þorbergssonar í starf framkvæmdastjóra SA hafi almennt mælst afar vel fyrir í íslensku atvinnulífi þá eru ekki allir á eitt sáttir við þá niðurstöðu. Vitað er að innan sjö manna framkvæmdastjórnar SA var ekki einhugur um að ráðninguna. Þannig beittu sumir í framkvæmdastjórninni sér fyrir því, einkum og sér í lagi Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, að Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, yrði ráðinn framkvæmdastjóri samtakanna. Sú skoðun fékk hins vegar lítinn hljómgrunn á meðal meirihluta stjórnarmanna enda þótt ýmsir áhrifamenn tengdir Kaupfélagi Skagfirðinga og stærstu útvegsfyrirtækja landsins hafi þrýst mjög á að Sigurður Kári fengi starfið.