Gustað hefur rækilega um Benedikt Jóhannesson síðustu daga og vikur en Benedikt hefur tekið þátt í tveimur stjórnarmyndunarviðræðum sem báðar hafa siglt í strand. Benedikt greindi meðal annars frá því að eitt af því sem ekki hefði náðst samkomulag um í viðræðum flokkanna fimm, sem síðast ræddu saman undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, hefðu verið landbúnaðarmál. Þessu höfnuðu talsmenn Pírata alfarið. Smári McCarthy sagði í fréttum á miðvikudag að það væri beinlínis ósatt að svo væri og í sama streng tók Birgitta Jónsdóttir.
Benedikt sagði svo í grein sem hann birti á heimasíðu Viðreisnar í gær að Viðreisnarþingmenn hefðu fyrst heyrt af skattahækkunarhugmyndum Vinstri grænna í Fréttablaðinu en þær ekki verið kynntar á fundum flokkanna. Við þetta kannast hins vegar fulltrúar annarra flokka ekki, auk þess sem Benedikt þarf að vera ansi bláeygður til að kannast ekki við stefnu Vinstri grænna í skattamálum. Það er því farið að vekja töluverða athygli fólks hversu oft söguskoðun Benedikts er á skjön við upplifun annarra.