„Stöð 2 misbauð mér í kvöld með ósvífnum hætti.“ Þetta sagði „copy/paste“-drottningin Lára Hanna Einarsdóttir eftir að hafa horft á viðtal Þorbjörns Þórðarsonar við þrjá fanga á Kvíabryggju í vikunni.
Svo illa var Láru Hönnu brugðið að hún þurfti að spila nokkrar klippur með Evu Joly á síðunni sinni, til að ná sér niður. Að lokum þakkaði hún Guði fyrir Ríkisútvarpið. Óvíst er að RÚV kunni henni þakkir á móti. Stundin birti að sjálfsögðu færslu Láru Hönnu sem sérstakan pistil á vefsíðu sinni. Samtals um 3.000 hafa „lækað“ þessa umfjöllun og hafði óábyrgur aðili á orði í gær að þetta væri heildarfylgi Vinstri grænna.