Árni vill allt

Árni Johnsen alþingismaður er harður á því að verja þingsæti sitt í komandi kosningum. Reyndar er fullyrt að hann stefni enn hærra og muni óska eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Þingmaðurinn hefur verið duglegur að rækta kjördæmi sitt með heimsóknum og hagsmunagæslu. Núverandi oddviti flokksins, Ragnheiður Elín Árnadóttir, er aftur á móti fáséð á slóðum kjósenda sinna og flestum ókunn.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.