Strigakjaftur

Þráinn Bertelsson alþingismaður er einn mesti strigakjaftur þingsins. Hann hefur í gegnum tíðina reglulega stuðað fólk með yfirlýsingum á borð við þá að hátt hlutfall íslensku þjóðarinnar sé fávitar.

Síðasta uppnámið varð þegar hann kallaði bréfritara sem voru nafnlausir undir Tunnunum „nafnlausa aumingja“. Tunnurnar hafa látið sig varða framgöngu Alþingis í þágu almennings og vildu svör við fáeinum spurningum en voru hundskammaðar af þingmanninum sem vildi ekki fleiri bréf frá nafnlausum aumingjum.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.