Smala hent út

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er viðkvæmur maður. Á miðvikudaginn fleygði hann út af Facebook-síðu sinni bloggaranum og kosningasmalanum Guðmundi Sigurðssyni sem unnið hefur fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Ástæðan mun vera sú að Bjarni setti inn færslu um skattagleði vinstrimanna. Guðmundur skrifaði athugasemd þar sem hann minnti á að ríkissjóður ætti eftir að borga klúðrið vegna Sjóvár. Bjarni brást skjótt við og henti út eigin kosninga­smala. „Bjarni er meiri kerling en flestir aðrir sem ég þekki til í stjórnmálum,“ voru viðbrögð Guðmundar.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.