Skuldakóngar sparisjóðs

Birgir Þór Runólfsson, dósent í viðskiptafræði, hefur tekið sæti í rannsóknarsetri Hannesar Hólmsteins. Birgir og kona hans skulduðu Sparisjóðnum í Keflavík 436 milljónir króna þegar sjóðurinn var tekinn yfir af Landsbankanum. Þá sat Birgir í stjórn sparisjóðsins sem Fjármálaeftirlitið snupraði.

Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, er stjórnarmaður í rannsóknarsetrinu. Hann átti stóran hlut í félaginu Bergi sem nýverið var tekið til gjaldþrotaskipta eftir að hafa meðal annars þegið hundraða milljóna lán frá Sparisjóðnum í Keflavík. Jónmundur og Birgir munu væntanlega deila reynslu sinni á viðburðum setursins.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.