Ari yfirgaf Jón Ásgeir

Fjölmiðlakóngurinn Ari Edwald er nú fluttur frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Að vísu bjó hann ekki hjá athafnamanninum heldur leigði hús hans á Laufásvegi. Ari og Jón eru miklir félagar en sá síðarnefndi fer með eigendavald á 365 miðlum ásamt Ingibjörgu Pálmadóttur, eiginkonu sinni.

Leið Ara og fjölskyldu liggur nú úr Reykjavík í Garðabæ. Mun honum hafa þótt fremur þröngt í húsi Jóns Ásgeirs, enda telur ört stækkandi fjölskyldan níu manns. Hann yfirgaf því hús Jóns í síðustu viku.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.