Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
09:29 › 5. ágúst 2012
Sjálfstæðismenn eru margir farnir að hugsa sér til hreyfings vegna yfirvofandi prófkjöra eftir áramót. Í Kraganum er reiknað með að Bjarni Benediktsson formaður verði kosinn leiðtogi.
Aftur á móti ríkir mikil óvissa um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fyrrverandi varaformann flokksins, sem á dögunum sótti um starf framkvæmdastjóra Hörpu. Staða Þorgerðar innan flokksins þykir vera slæm. Allt eins er búist við að hún hætti sjálfviljug fremur en að taka áhættuna af því að verða felld.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013