Lúsarlaun

Eiður Guðnason, bloggari og fyrrverandi ráðherra, á það til að vera meinhæðinn. Það vekur athygli hans að Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN, er á lúsarlaunum ef litið er til skattlagningar.

Þá er Eiður áhyggjufullur vegna útvarpsparsins Arnþrúðar Karlsdóttir og Péturs Gunnlaugsson sem stýra Útvarpi sögu. Telur Eiður að þau þurfi hjálp. „Þau hjúin komast ekki einu sinni á blað. Góðhjartaðir ættu að gauka fiskspyrðu að þessu bágstadda fólki,” bloggar Eiður og telur að parið búi kannski í „einhverju sérstöku skattaskjóli“.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.