Jóhannes í fleygiferð

Titringur er nú á matvörumarkaði eftir að Jóhannes Jónsson, áður kenndur við Bónus, opnaði fyrstu Iceland-verslunina við Engihjalla í Kópavogi. Troðfullt var í versluninni fyrstu dagana. Á sunnudeginum var allt að 50 mínútna bið í ógnarlöngum röðum við kassana. Miðað við þetta upphaf er talið að stutt verði í að næsta verslun Jóhannesar líti dagsins ljós. Stefnir því í blóðugt stríð sem mun verða einhverjum verslunum dýrkeypt.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.