Gutti formaður

Talið er líklegt að nýr formaður Samfylkingarinnar verði valinn í prófkjöri næsta haust. Þeir sem eru nefndir líklegastir arftakar Jóhönnu Sigurðardóttur eru Árni Páll Árnason og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra.

Guðbjartur, sem er gjarnan kallaður Gutti, er líklegri til að njóta stuðnings Jóhönnu heldur en Árni Páll, sem var sviptur ráðherrastóli og fór lítið leynt með óánægju sína. Ef Guðbjartur verður ofan á, má telja líklegt að samstarf vinstri flokkanna eigi sér meiri lífsvon en ella.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.