Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor var verðlaunaður af Sambandi ungra Sjálfstæðismanna (SUS), fyrir framlag sitt til frjálshyggjunnar, alveg eins og vefurinn amx.is. Tíunduð voru störf hans í þágu frjálshyggju á fyrri árum, sem vissulega voru brautryðjandi í íslensku samfélagi. Í seinni tíð hefur Hannes hins vegar gerst holdgervingur þess sem frjálshyggjan berst gegn – þeirra sem lifa á ríkisspenanum og eru niðurgreiddir af almenningi. Hann er til að mynda æviráðinn ríkisstarfsmaður við Háskóla Íslands og hefur þegið milljónir í styrki og undarlegustu verkefni frá ríkinu í gegnum flokksfélaga sína í Sjálfstæðisflokknum. Lengi hafa gengið sögur um að ríkisstarfsmaðurinn Hannes sé einn af helstu slúðurmolahöfundum amx.is, en hann hefur ekki viljað svara spurningum um það.
Fræðimaður verðlaunaður
Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:14 › 8. júlí 2012
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum