Ósátt við Svein Andra

Sveinn Andri Sveinsson er áberandi í fjölmiðlum vegna ýmissa mála og er afar vinsæll meðal fólks, enda svokallaður stjörnulögfræðingur. Hjördís Aðalheiðardóttir er ein þeirra sem leitaði til Sveins Andra í erfiðu forræðismáli sínu. Hjördís hefur nú misst þrjár dætur sínar í hendur fyrrverandi eiginmanns í Danmörku. Hjördís er afar ósátt við málsmeðferðina hér heima og í Danmörku. Hún hefur greint frá því opinberlega að hún telji að mistök Sveins Andra, meðal annars orðalag í kæru, hafi skipt sköpum í málinu, en Sveinn Andri hefur vísað því á bug. Hann hætti með málið þegar hann sá ekki skilyrði fyrir endurupptöku þess.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.