Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
07:56 › 4. júlí 2012
Viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson í mánudagsblaði DV var áhugavert að ýmsu leyti. Um kosningabaráttuna segir forsetinn meðal annars: „Við fórum ekki út í gamlan farveg áróðurstengdra auglýsinga í öllum miðlum. Þess vegna held ég að úrslitin sýni það líka að fólk vill ekki gamaldags auglýsingakosningabaráttu.“ Vandséð er hvort Ólafur er með þessu að gagnrýna kosningabaráttu helsta keppinautar síns, Þóru Arnórsdóttur, eða þá kosningabaráttu sem kom honum sjálfum til valda árið 1996. Framboð Þóru kostaði tæplega 12 milljónir, en framboð Ólafs Ragnars árið 1996 kostaði þá 43 milljónir, eða 90 milljónir að núvirði.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013