Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
15:08 › 30. júlí 2012
Þorbjörn Þórðarson fréttamaður Stöðvar 2 á til sniðuga spretti í starfi sínu þar sem hann vekur athygli fyrir hégómalitla snyrtimennsku og latínufrasa sem ekki eru á allra færi.
Þorbjörn var með ítarlega frétt í gærkvöld um að Sigríður Inga Ingadóttir alþingismaður íhugaði að bjóða sig fram til formanns Samfylkingar. Lagði Þorbjörn land undir fót til þess að fá Sigríði til að lýsa orðrétt yfir því sama og hún sagði í helgarviðtali við DV. Jafnframt gætti hann þess vandlega að nefna ekki upphafsheimildina einu orði.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013