Ljósmyndari í lukkupottinn

Júlíus Sigurjónsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, datt heldur betur í lukkupottinn þegar hann náði myndum af Tom Cruise og Katie Holmes á göngu í Þingholtsstræti í júní. Í erlendum fréttamiðlum hefur komið fram að Tom og Katie hafi lítið sem ekkert sést saman frá því í febrúar.

Mynd Júlíusar varð síðan margfalt verðmætari þegar Katie sótti um skilnað frá Tom og er líklegt að um sé að ræða eina dýrustu ljósmynd sem Íslendingur hefur tekið, enda síðasta myndin af þeim saman. Í kjölfarið hafa laumuljósmyndarar streymt til landsins til að ná skoti af Tom.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.