Eyþór áhugalítill

Sjálfstæðisflokkurinn mun efna til prófkjörs víða um land eftir áramót. Búist er við að þá noti menn tækifærið til að losa sig við þá þingmenn sem ekki þykja bæta ímynd flokksins. Í suðurkjördæmi er Árni Johnsen umdeildur vegna fortíðar sinnar. Þá þykir oddvitinn, Ragnheiður Elín Árnadóttir, atkvæðalítil. Því er vilji til breytinga. Meðal þeirra sem nefndir hafa verið sem kandídatar er Eyþór Arnalds leiðtogi í sveitarstjórn Árborgar. Hann lætur þó ekki í ljósi mikinn áhuga.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.