Þingmaður léttist

Þingmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur á árinu stundað fjallgöngur af hörku og ósérhlífni. Í síðustu viku gengu hann og kona hans, Elín Sveinsdóttir framleiðandi, Laugaveginn fræga. Ferðin gekk áfallalítið en þó ekki átakalaust því Sigmundur upplýsti á Facebook-síðu sinni að hann hefði misst þrjú kíló á göngunni sem er um 80 kílómetrar þegar allt er talið.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.