Lítil eftirspurn

Stjórnmálamaðurinn Guðmundur Steingrímsson er á skrýtnum brautum. Lítið heyrist frá honum um pólitík eins og sjá má af slöku fylgi Bjartrar framtíðar. En skyndilega poppaði hann upp á Eyjunni með ítarlegan rökstuðning fyrir því að hann ætti að fá að stýra brekkusöng á Mýrarboltanum á Ísafirði. Hafði hann uppi mörg orð um þau leiðindi heimamanna að vilja ekki forsönginn. Það er sem sagt meira framboð en eftirspurn eftir kappanum.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.