Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:00 › 24. júlí 2012
Það þykir vera nokkur sjónarsviptir að brotthvarfi Einars Sveinssonar, athafnamanns og Engeyings, af landi brott. Einar hefur fært heimilisfang sitt frá Garðabæ til Bretlands. Í samtali við Viðskiptablaðið segir hann þetta vera „einkamál“ og vill ekki tjá sig um ástæður. Aftur á móti liggur fyrir að þessi áður valdamesti maður íslensks viðskiptalífs stendur nú á rústum eigin veldis. Fátt stendur eftir frá blómatímanum þegar hann stýrði N1 ásamt frænda sínum Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins. Sá rekstur lenti í skelfilegum ógöngum og markaði upphafið að fallinu.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013