Útrás Óskars

Innan fjölmiðlaheimsins ráku margir upp stór augu þegar Óskar Hrafn Þorvaldsson, fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar 2, upplýsti í DV að hann væri að koma af stað íþróttavef í Bretlandi og nyti þar liðsinnis Jóns Ásgeirs Jóhannessonar athafnamanns. Óskar hætti á Stöð 2 á sínum tíma eftir að hafa flutt fjölmargar fréttir af útrásarvíkingum.Talið er að hann hafi verið ósáttur við Jón Ásgeir þegar hann fór á Fréttatímann. En nú er gróið um heilt og kappinn kominn í útrás með sínum forna fjanda.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.