Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
07:33 › 20. júlí 2012
Smáfuglarnir á amx.is tóku sér vikufrí en hafa snúið aftur. Vera má að þeir hafi gert sér glaðan dag og fagnað því að þeim skyldi hafa verið veitt frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar ásamt Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Lengi hafa gengið sögusagnir um að Hannes eigi það til að bregða sér í líki smáfugls. Gárungarnir velta nú fyrir sér hvort smáfuglarnir hafi ef til vill flogið í oddaflugi suður á bóginn. Jafnvel til Brasilíu?

Hemmi Gunn fallinn frá