Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:00 › 17. júlí 2012
Innan Sjálfstæðisflokksins gætir vaxandi kvíða vegna stöðu Bjarna Benediktssonar sem losnar ekki undan vafningum og öðrum viðskiptasyndum fortíðarinnar. Á meðan ríkisstjórnin og Jóhanna Sigurðardóttir sækja í sig veðrið vegna efnahagsbatans fjarar undan Bjarna. Þykir mönnum nokkuð einsýnt að hann muni ekki leiða flokkinn til aukinna valda. Einhverjir iðrast þess að hafa ekki stutt Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til formennsku þegar tækifæri var til þess. Ólíklegt er talið að Bjarna verði skákað út fyrir kosningar. Til þess er hann of sterkur í flokkskerfinu.

Hemmi Gunn fallinn frá