Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:08 › 16. júlí 2012
Í pistli á Pressunni stekkur Hannes Hólmsteinn Gissurarson til varnar lærimeistara síns á Morgunblaðinu. Í skaksteinum blaðsins var dylgjað um millinafn Steingríms J. Sigfússonar og rætt um merkingu joðsins.
Menn túlkuðu skaksteininnsem sem svo að hér ætti fyrrum seðlabankastjórinn við nafnið Júdas og þótti það sérlega lúalegt bragð frá Hádegismóum. En Hannes er ekki á sama máli. Var prófessorinn fullviss um að þar hafi verið að vísa til orðsins „Jójó“, sem er leikfang sem sveiflast á spotti, fremur en svikarans alræmda.

Hemmi Gunn fallinn frá