Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:00 › 16. júlí 2012
Eggert Bjarni Guðmundsson, nýráðinn forstjóri N1, þykir hafa skilað góðu starfi með Granda hf. sem stendur í miklum blóma. Einhverjir furða sig á því að hann skyldi skipta um vettvang. En jafnframt gætir mikillar spennu um það hver verði arftaki hans í því draumastarfi sem er að stýra sjávarútvegsrisanum. Sá sem ræður mestu um það er Árni Vilhjálmsson, stjórnarformaður og aðaleigandi félagsins, sem að sögn er ekki par sáttur við skyndilegt brotthvarf Eggerts.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi