Blaðastríð

Jón Kaldal, stofnandi og fyrrverandi ritstjóri Fréttatímans, þykir vera hæfur maður á sínu sviði. Það kom mönnum nokkuð á óvart þegar hann hætti snögglega í vor og Jónas Haraldsson, fyrrverandi ritstjóri amx.is, settur í hans stað.

En nú hefur Jón komið sér fyrir á nýjum fjölmiðli. Að þessu sinni er það undir merkjum útgáfunnar Heims og er ætlunin að gefa út á dagblaðsformi fréttablað Iceland Review á ensku. Þar er höfðað til ferðmanna á Íslandi og lagt upp í grjótharða samkeppni við Grapevine sem er fyrir á markaðnum. Það stefnir því í blaðastríð.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.