Davíð stuðar sjalla

Nokkur titringur er innan Sjálfstæðisflokksins vegna framgöngu Davíðs Þorlákssonar, formanns Sambands ungra sjálfstæðismanna, sem fór á kostum í Valhöll þar sem hann hélt kosningapartí til heiðurs Ólafi Ragnari Grímssyni að kveldi kosningadagsins.

Þetta fór illa í marga og sérstaklega Þóruliðið í flokknum. Þar má nefna framkvæmdastjóra flokksins, Svanhildi Hólm og Brynhildi Einarsdóttur, eiginkonu Illuga Gunnarssonar þingmanns, sem stóðu framarlega í fylkingu Þóru.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.