Árni Páll með Bjarna Ben

Árni Páll Árnason er með þeim hægrisinnaðari í Samfylkingunni. Ef hann verður formaður Samfylkingarinnar í haust getur hann myndað brú yfir þá gjá sem liggur milli Samfylkingar, annars vegar, og Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hins vegar.

Árni Páll og formennirnir Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eru mestu mátar. Þeir hafa meðal annars sést saman við bjórdrykkju og innilegt spjall á 101 hóteli Ingibjargar Pálmadóttur og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Árni er því líklegur til að vera lykillinn að endurreisn ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.