Fyrst eyði útgerðarmenn peningunum

Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður í Brimi, hefur skýrar hugmyndir um hvernig þjóðin eigi að fá sinn hluta af tekjum sjávarútvegsins. Ein besta leiðin sé að láta sjómenn og útgerðarmenn eyða ágóðanum og skila honum þannig aftur út í samfélagið. Guðmundur var á Beinni línu á DV.is á fimmtudag. Þar sagði hann að fiskurinn í sjónum ætti sig sjálfur en þegar væri búið að veiða hann ætti útgerðin fiskinn. Þegar búið væri að selja fiskinn væri peningunum skipt niður eftir ákveðinni aðferðafræði. „Þá fær þjóðin sína peninga í gegnum skattkerfið og þegar sjómenn og útgerð eyða þeim.“



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.