Fræga fólkið í boðinu

WOW air, flugfélag Skúla Mogensen, bauð í myndarlega boðsferð til Parísar um síðastliðna helgi. Valið á gestum hefur vakið umtal, en á meðal boðsgesta var borgarfulltrúinn Einar Örn Benediktsson. Siðareglur meina borgarfulltrúum að þiggja slík boð, en Einar segist hafa verið þarna sem æskuvinur Skúla, og hafa auk þess verið látinn borga 5.900 krónur fyrir ferðina. Flestir sem fengu boð voru fjölmiðlamenn sem WOW vildi fá til að fjalla um þjónustuna. Á myndaseríu Mörtu Maríu Jónasdóttur á MBL.is mátti hins vegar sjá alls kyns frægðarfólk. Þar voru meðal annars athafnahjónin Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, Bjössi og Dísa í World Class, sem hafa átt í vök að verjast fyrir dómstólum eftir að hafa selt sjálfum sér World Class á frábæru verði til að forða rekstrinum frá skuldum.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.