Það sem felldi Ástþór

Ástþór Magnússon heltist úr lestinni í forsetakosningunum þegar í ljós kom að nokkur fjöldi undirskrifta á stuðningsmannalistum hans var falsaður.

Undir frétt um málið á DV.is útskýrði Ástþór þá lýðræðislegu hættu sem skapast af því að synja mönnum um framboð vegna falsaðra undirskrifta. „Þarna afhjúpast gat sem gerir skemmdarvörgum kleift að planta flugumönnum innan sjálfboðaliða og starfsmanna til að ógilda nánast hvaða pólitíska framboð sem er.“ Aðrir líta svo á að hvatakerfi Ástþórs hafi orðið honum að falli, en hann bauð fría utanlandsferð til Marbella á Spáni fyrir þann sem framleiddi flestar undirskriftir.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.