Björgólfur Thor Björgólfsson veltir Jóhannesi í Iceland, áður Jóa í Bónus, upp úr tjöru og fiðri eftir Mannlífsviðtal Jóhannesar, þar sem hann kvartar yfir því að allt hafi verið „hirt af“ honum og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni.
Björgólfur, sem var einn af aðaleigendum Landsbankans, talar um „vitleysu“ í Jóa og rifjar upp að feðgarnir hefðu einfaldlega veðsett eignir sínar hjá Landsbankanum til að fá lán, sem þeir gátu síðan ekki borgað. Í millitíðinni hafi þeir „skafið allt fé“ út úr fyrirtækinu sínu og meðal annars selt Iceland á uppsprengdu verði til sjálfs sín fyrir lánsfé, sem þeir gátu síðan ekki borgað. Björgólfur kallar Jóa „hin kvartsára kaupmann“ og segist sjálfur telja óeðlilegt að „menn geti gengið frá viðskiptum án nokkurra persónulegra eftirmála þegar allt fer á versta veg.“ Íslenska þjóðin kann að vera sammála því, en hún var í ábyrgðum fyrir Icesave-ævintýri Landsbankans sem fór á versta veg.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013