Vigdís hefði aldrei orðið forseti

Stuðningsmenn Þóru Arnórsdóttur hafa reynt að höfða til Ara Trausta Guðmundssonar um að hætta við forsetaframboð, til að tryggja fall Ólafs Ragnars Grímssonar. Fyrirmynd Þóru, Vigdís Finnbogadóttir, hefði aldrei orðið forseti ef stuðningsmenn helsta keppinauts hennar árið 1980 hefðu náð sínu fram. Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari var vinsæll maður og óumdeildur. Hann fékk 32,3 prósent atkvæða og tapaði naumlega fyrir Vigdísi, hlaut aðeins 1.900 færri atkvæði en hún. Áður höfðu hins vegar stuðningsmenn hans þrýst á Albert Guðmundsson ráðherra og Pétur J. Thorsteinsson sendiherra að draga framboð sín til baka og fylkjast að baki Guðlaugi. Albert fékk tæp 20 prósent og Pétur 14 prósent, þannig að fyrsti þjóðkjörni kvenkyns þjóðhöfðinginn hefði líklega ekki orðið íslenskur ef það hefði gengið eftir.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.