Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
20:00 › 28. júní 2012
Þóra Arnórsdóttir hefur líkt sjálfri sér við Vigdísi Finnbogadóttur forseta. Vigdís þurfti sjálf að verjast aðsókn manna, sem reyndu að tengja hana við stjórnmál, þegar hún bauð sig fram 1980. Líklegt þótti að hún væri frjálslynd alþýðubandalagskona, þótt hún gæfi það ekki út. Hins vegar hafði hún, nokkrum árum fyrir framboð sitt, verið opinber andstæðingur hersetunnar á Keflavíkurflugvelli. Andstæðingar hennar reyndu að grafa undan henni með þeirri tengingu, en þegar nánar var að gáð var ljóst að Vigdís hafði tjáð sig af stillingu og hófsemd í hatrammri deilu um hermálið, ólíkt mörgum öðrum, og olli þetta henni litlum skaða.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013