Í skugga hruns

Fréttir um afskriftir á skuldum fyrrverandi móðurfélags fjölmiðlahluta 365 miðla hafa kallað fram í hugann minningar um nokkurra ára gamlar fréttir. Í síðustu viku var greint frá því að afskrifa þyrfti um fjóra milljarða króna af skuldum Íslenskrar afþreyingar ehf. sem var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og hélt utan um eignarhald á fjölmiðlum hans. Jón Ásgeir seldi fjölmiðlana út úr félaginu í nóvember 2008 með samþykki Landsbankans. Rifjaðist það upp fyrir mönnum að í nóvember 2008 voru einhverjir af fyrrverandi samverkamönnum Jóns Ásgeirs enn að störfum í Landsbankanum. Meðal annars Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, og Sigurjón Árnason og Elín Sigfúsdóttir sem voru náin Jóni Ásgeiri og Baugi og tóku þátt í frægu skíðaskálapartíi í Frakklandi sem fest var á mynd. Spurningin er hvort þessi tengsl hafi skipt máli þegar Jón fékk að halda 365 miðlum.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.