Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:00 › 25. júní 2012
DV greindi frá því fyrir skömmu að aðalkennsluefnið í eignarrétti í lögfræði í Háskóla Íslands væri skrifað af Helga Áss Grétarssyni. Í námskeiðinu er fjallað um túlkanir á lögum um stjórn fiskveiða út frá útleggingum Helga Áss. Svo vill til að Helgi Áss þiggur laun sín frá Landsambandi íslenskra útvegsmanna sem kostar stöðu hans við háskólann. Túlkunin á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem ungir laganemar lesa um í grunnnámi sínu kemur því frá starfsmanni LÍÚ. Systir Helga Áss er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingkona VG, en flokkur hennar hefur barist harkalega fyrir breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu og upptöku hækkaðs veiðigjalds. Launagreiðandi Helga Áss hefur aftur barist gegn þessum breytingum. Staða systkinanna er því afar ólík.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum