Lind Þóru

Auglýsingaherferð Þóru Arnórsdóttur þykir benda til þess að fjársterkir aðilar standi á bak við hana. Á heimasíðu Þóru kemur fram að 11 milljónir króna hafi safnast í kosningasjóð hennar. Starfsmenn framboðs Þóru hafa ekki greint frá því hvaðan þessir fjármunir koma. Þegar litið er yfir stuðningsmannahóp Þóru kemur hins vegar í ljós að þekkt efnafólk stendur á bak við hana, meðal annarra. Þar ber einna helst að nefna Ingu Lind Karlsdóttur fjölmiðlakonu en hún og eiginmaður hennar, Árni Hauksson, eru milljarðamæringar eftir klók viðskipti með Húsasmiðjuna í góðærinu og skynsamlegar fjárfestingar eftir hrun.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.