Satt og logið um Tom Cruise

Óþrjótandi sögusagnir eru á kreiki um Tom Cruise fyrir norðan, þar sem hann dvelur. Staðfest er að maður hringdi í verslunarmiðstöðina Glerártorg á Akureyri og fór fram á það, fyrir hönd Tom Cruise, að verslunarmiðstöðinni yrði lokað fyrir almenning í 40 mínútur, svo hann gæti verslað í friði.

Þetta hefur verið afskrifað sem gabb. Sögur segja nú að stjörnufans verði fyrir norðan þegar Cruise heldur upp á fimmtugsafmælið sitt 3. júlí, en meðal vina hans eru fótboltamaðurinn David Beckham og leikararnir Will Smith og John Travolta. Segir sagan að Cruise hafi látið panta glæsilega sumarbústaði fyrir félagana.

DV kannaði málið hjá Leó Júlíussyni, sem heldur utan um glæsilegustu orlofshúsin við Akureyri, og spurði hann hvort svo væri. „No comment,“ var hans svar.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.